Nýtt blogg – Þróun og menntamál

Nýtt blogg – Þróun og menntamál

Ég (hver er “ég”???) hef verið að blogga í nokkra mánuði á ensku á ICTs and leapfrogging development. Ég er u.þ.b. að klára MA nám í menntun og þróun og má segja að enska bloggið er einskonar vinnubók fyrir lokaritgerðina. Þar er ég mest að skrifa um upplýsingatækni í þróunarstarfi, þá helst tengda menntun. En það fer að styttast í heimkomu og því ekki vitlaust að fara að segja eitthvað um þessi mál á íslensku. Ég lofa samt engu því það gæti farið svo að ég hafi lítinn tíma á næstunni til að halda úti tveimur bloggum, en við sjáum til hvernig gengur.

En til að byrja með eru hér nokkrir linkar á síður sem ég fylgist með:
Development Gateway
United Nations Information and Communication Technologies Task Force
InfoDev: The Information for Development Program
Andy Carvin’s Waste of Bandwidth
John Daly’s Thoughts About Knowledge for Development

Segjum þetta gott í bili.

Athugasemdir