Ritvinnslusnið Microsoft verður ISO staðall

Ritvinnslusnið Microsoft verður ISO staðall

Fréttir af þessu dreifðust um netið í gær en maður þorði ekki, eða vildi ekki trúa því að þetta væri ekki aprílgabb. Í dag er svo ekki annað að sjá en að þetta sé raunveruleg niðurstaða. OOXML hefur s.s. verið samþykktur og það sem tekur við núna er 2ja mánaða áfrýjunartímabil. Ef ekkert gerist á þessu tímabili (og ólíklegt að það gerist þar sem staðallinn hefur staðist allt ferlið fram til þessa þótt margt virðist athugavert við það ferli) verður staðallinn gefinn út og er þá orðinn formlegur ISO staðall. Meira um þetta á vef Sigurðar Fjalar Jónssonar sem hefur fylgst vel með þessu máli.

Athugasemdir