HÍ ekki meðal bestu heims?

HÍ ekki meðal bestu heims?

Ég rakst á “frétt” á bls 2. í Fréttablaðinu í dag (06.08.08) um að Háskóli Íslands sé “ekki meðal 500 bestu háskóla heims” og ekki einu sinni meðal “100 bestu háskóla Evrópu”. Heimildin fyrir þessu er s.k. Sjanghæ-listinn sem gefinn er út af Stofnun fyrir æðri menntun við Sjanghæ Jiao Tong háskólann í Kína. Greinarhöfundur heldur því svo fram að listinn sé “mikils metinn” og væntanlega þ.a.l. marktækur.

Ég ætla að leyfa mér að staðfesta að Sjanghæ-listinn er alls ekki mikils metinn og raunar einn sá sem hefur þurft að þola mestu gagnrýni af þeim velþekktu listum sem gefnir eru út árlega. Gagnrýnin snýst að miklu út á það að aðferðafræðin mælir hluti sem hafa lítið með gæði háskóla að gera, t.d. fjölda nóbelsverðlaunahafa o.þ.h. vitleysu (sjá t.d. neðst hér). M.a.s. hefur verið bent á að aðferðafræði þeirra virðist ekki einu sinni ganga upp við endurteknar mælingar, sem er mesti áfellisdómur sem listi af þessu tagi getur fengið á sig.

En, eins og blaðamaður Fréttablaðsins bendir á, vitna virt tímarit eins og Economist í þennan lista! Ástæðan fyrir því er afar einföld – listinn er gefinn út á netinu og það þarf ekki að borga fyrir aðgengi að honum. En aðrir listar (þeir hafa allir sína galla en þykja þó margir marktækari en Sjanghæ-listinn) eru ekki birtir almenningi í heild og aðeins veittur aðgangur með áskrift, enda er það fyrirferðamikill og dýr bransi að meta háskóla.

Hvort HÍ er að fikra sig upp einhverja lista yfir bestu háskóla heims, í samræmi við sína stefnu, veit ég ekki. En Sjanghæ-listinn er ekki áreiðanleg heimild um það.

Athugasemdir