4.8.2009 kl. 12:14
Farsímar, ungt fólk og menntun
Auðvitað er mikilvægt fyrir þá sem vinna með ungu fólki að fylgjast með breyttum högum í þeirra félagslífi og farsímar eru öflugt tæki fyrir félagsleg samskipti. En ef við kennum tækninni um er hætta á að við missum af tækifærum til að nota hana til góðs. Munum að í því sem er verið að lýsa í greininni er það hegðunin sem skapar vandræði, ekki tæknin.
Farsímar geta verið mjög gagnlegir til kennslu eins og sjá má á þessum veffundi sem ég fylgdist með nýlega – Cellphones as Instructional Tools.
Athugasemdir
Baldvin Mar Smárason
4.8.2009 kl. 12:30
Ef ég hefði hatt, hefði ég tekið hann að ofan.
Ánægulegt að sjá mogga bloggara sem hugsar áður en hann skrifar.