24.8.2011 kl. 15:20
Innleiðing frjálss hugbúnaðar í framhaldsskólum
- hann er ódýrari – hugbúnaðurinn kostar ekkert og það eru engin leyfisgjöld
- hann er sveigjanlegri – notendur hafa frjálsan aðgang að tölvukóðanum og geta breytt honum að vild
- hann er öruggari – frjáls aðgangur að kóða eykur gegnsæi og villur finnast fljótt og eru fyrr lagaðar
Þrátt fyrir að þetta eru jákvæð skref er í raun ótrúlegt hvað það hefur tekið langan tíma fyrir skólafólk að viðurkenna frjálsan hugbúnað sem raunhæfan valmöguleika. Það kemur þó ekki mikið á óvart miðað hvernig umræðunni um notkun frjáls hugbúnaðar í skólum var háttað fyrir 5-10 árum (t.d. að láta aðila sem byggir afkomu sína á sérleyfishugbúnaði að framkvæma “mat” á frjálsum hugbúnaði – á hér sérstaklega við (ó)fræga skýrslu sem Halldór Kristjánsson, framkvæmdastjóri Tölvu- og verkfræðiþjónustunnar, vann fyrir menntamálaráðuneytið fyrir ca. 8 árum).
Það væri áhugavert að vita hvaða hugbúnað er verið að nota í þessum skólum. Nú er svo komið að það er hægt að fá frjálsan hugbúnað til að framkvæma vel flest það sem sérleyfishugbúnaður hefur verið notaður í til þessa. Bendi sérstaklega á vefinn OSALT.COM þar sem auðvelt er að finna frjálsan hugbúnað sem kemur í stað sérleyfishugbúnaðar.
Athugasemdir