Mjög áhugaverð keppni í forritun og vélmennahönnun um helgina

Mjög áhugaverð keppni í forritun og vélmennahönnun um helgina

Um helgina verður FIRST LEGO League forritunar- og vélmennahönnunarkeppni haldin í Háskólabíói. Þetta er mjög áhugaverð keppni sem hefur verið haldin árlega á Íslandi í nokkuð mörg ár núna þar sem ungt fólk fær tækifæri til að sameina tækniþekkingu og hugvit við að leysa mjög praktísk verkefni.

Í gegnum árin hefur Lego átt þátt í að leiða margt hæfileikaríkt ungt fólk á braut uppfinninga og tækniþróunar. Smá sögulegt ágrip fyrir þá sem ekki þekkja: Lego hóf samstarf við Seymour Papert(frumkvöðull í notkun upplýsingatækni í skólastarfi – bjó til Logo forritunarmál fyrir krakka, kom af stað einni fyrstu stórtæku 1:1 fartölvuvæðingunni í skólum í Maine-fylki í BNA. og margt fleira) fyrir nokkrum áratugum sem leiddi af sér Lego Mindstorms vörulínuna. Það sem gerir Lego Mindstorms vörulínuna sérlega áhugaverða fyrir skólafólk, að vörulínan er hönnuð út frá vel grunduðum pedagógískum pælingum. Lego Mindstorms eru forritanleg Lego sett sem eru notuð til að búa til einföld og lítil vélmenni. Með þessu kynnist ungt fólk forritun, vélmennahönnun, gervigreind, o.s.frv. Lego Mindstorms hefur líka verið notað til kennslu á háskólastigi. Notkun Lego Mindstorms innan skóla jafnt sem utan hefur verið mikið rannsökuð og þykir það mjög heppilegt tæki til að kynna fyrir ungu fólki möguleika nútíma tækni á öllum skólastigum.

Salvör Gissurardóttir benti á þessa upptöku frá Málþingi RANNUM um First Lego League keppnina sem var haldið á síðasta ári: http://frea.adobeconnect.com/p4o23javfm6/

Athugasemdir