13.5.2006 kl. 17:57
Varúð – upplýsingasamfélag í aðsigi!
Það er til fólk hér í Bandaríkjunum sem þykist vita hvernig eigi að tryggja heilbrigt líferni fólks, sérstaklega ungs fólks. Lausnin er einföld – annaðhvort að fjarlægja vandamálið eða að halda fólki frá vandamálinu með öllum tiltækum ráðum. Við sjáum þetta í takmörkun á útivist ungs fólks, bönn á farsímanotkun ungs fólks og takmörkun eða bönn á notkun upplýsingaþjónustu (sérstaklega hina illræmdu MySpace).
“… [búið] til vefsíður eða síður sem innihalda upplýsingar um þá, sem verða aðgengilegar öðrum … [og sem bjóða upp á] samskiptatæki sem gerir kleift að hafa samskipti við aðra notendur, s.s. samskiptatorg, spjall þjónustur, tölvupóstur, eða skilaboðaþjónustur.”
Og hvað er þá eftir? Að skoða vefsíður (sem búið er að samþykkja og hleypa í gegnum síu) og … umm … ekkert. En, viti menn, vandamálið er horfið! Er það ekki?
Athugasemdir