8.3.2007 kl. 18:14
Held ég sé sammála ráðuneytinu núna – óhjákvæmilegar breytingar
Eins og segir í þessari frétt er ekki lagt til að ÞSSÍ verði lögð niður. Lagðar eru fram tvær hugsanlegar leiðir í málin – leið 1., að ÞSSÍ verði áfram sjálfstæð stofnun með skýrt verksvið þannig að ráðuneyti og ÞSSÍ geti samræmt betur samstarf og leið 2., að ÞSSÍ renni saman við ráðuneytið og verður partur af þróunarsamvinnusviði þess.
Þessar tillögur ættu ekki að koma neinum á óvart sem vissi að endurskoðun væri í gangi. Svona er bara þróunarsamstarf í dag. Eitt meginmarkmið í Þúsaldaryfirlýsingunni er að hnattvæðing virki sem jákvætt afl í lífi allra jarðarbúa (1.5). Þannig að það er ekki hægt að skilja á milli utanríkisstefnu sem miðar að því að mæta þeirri áskorun sem felst í hnattvæðingunni og þróunarsamstarfs.
Ég reyni kannski að lesa skýrsluna betur í kvöld og hef þá væntanlega meira að segja…
Athugasemdir