Reyndar var það miðlægur þjónn Napster sem varð honum að falli

Reyndar var það miðlægur þjónn Napster sem varð honum að falli

Það er rangt sem sagt er í fréttinni að Napster notaði ekki miðlægan þjón. Napster notaði miðlægan “index” þjón til að skrá allt sem var í boði í gegnum Napster netið. Þetta er eiginlega það sem varð Napster að falli. Síðari peer-to-peer (P2P) forrit sem komu, e.o. Kazaa og Gnutella, nota engan miðlægan þjón og er því ómögulegt að loka alveg á þá þar sem þá þyrfti að loka á allar tölvur einstaklinga sem nota hugbúnaðinn. Með Napster var nóg að slökkva á miðlæga þjóninum og þá gátu notendur ekki miðlað eða fengið upplýsingar um þau skjöl sem voru í boði.

Athugasemdir