17.5.2007 kl. 23:00
Hefði átt að reka hann
Það munaði svo litlu. En svona vill pólitíkin oft vera – stórlaxarnir gera aldrei neitt af sér – allt saman misskilningur.
Svo kemur stóra spurningin – hvað gerist næst? Fá Bandaríkjamenn að tilnefna pólitískan forstjóra eins og áður eða verður einhver sem er raunverulega hæfur í djobbið ráðin? Nú er tækifæri til að gera mjög jákvæðar breytingar sem gætu haft mikla þýðingu fyrir þróunarmál.
<bætt við seinna> Bandaríkjamenn ætla þá víst að fá að útnefna sinn mann aftur. Hver verður nú? Kannski Gonzales – fer hann ekki að þurfa að fá nýja stöðu? Fátt kæmi á óvart.
<önnur viðbót> Var að lesa yfirlýsingu Wolfowitz. Þar telur hann upp öll góðverkin sem hann hefur unnið síðustu 2 árin. En skrítið, ekki orð um stórverkin í Írak!
Athugasemdir
FreedomFries
19.5.2007 kl. 02:01
Sæll! þar sem þú ert ekki með gestabók datt mér í hug að heilsa upp á þig hér – en semsagt, ég held að við þekkjumst eitthvað lítillega síðan í Minneapolis, og nú erum við aftur nágrannar í bloggheimum!
Bestu kveðjur, Magnús