Hmm… Hver er þessi Zoellick?

Hmm… Hver er þessi Zoellick?

Meira eða minna hrakinn úr stjórn Bush vegna þess að honum tókst illa að koma hlutum í verk. Eins og Bolton, bara ekki eins mikill dóni. Hann veit kannski meira um alþjóðamál en Wolfowitz, en hann hefur bara verið svolítið misheppnaður greyið. Er nokkur ástæða að ætlast til að betur gangi hjá honum í Alþjóðabankanum?

Svo getur hann látið frá sér mjög “gáfulega” hluti, e.o.:

“People driven by enmity or by a need to dominate will not respond to reason or goodwill. They will manipulate civilized rules for uncivilized ends.” 

Robert B. Zoellick, Campaign 2000: A Republican Foreign Policy, Foreign Affairs,
January/February 2000.

Berið það svo saman við bréf sem hann undirritaði 1998 (tengist PNAC – rugludallaklúbbur sem stefnir að Bandarískum alheimsyfirráðum):

We urge you to
seize that opportunity, and to enunciate a new strategy that would secure
the interests of the U.S. and our friends and allies around the world. 
That strategy should aim, above all, at the removal of Saddam
Hussein’s regime from power.  We
stand ready to offer our full support in this difficult but necessary
endeavor.

Hmm… an example of “enmity”, “a need to dominate” or both?

 

En, nafnið hljómar eins og “Selleck”, sbr. Tom Selleck, sem lék Magnum P.I. Ég vildi að ég héti Magnum! 

Athugasemdir

Úlfar Þór Birgisson Aspar

30.5.2007 kl. 09:54

Sæll Tryggvi ég sé þú hefur mikinn áhuga á hverjir stjórni peningum heimsins og er það vel gangi þér allt í haginn kveðja Úlli.

Tryggvi Thayer

30.5.2007 kl. 10:16

Alþjóðabankinn hefur lítið með “stjórnun peninga heimsins” að gera.