Kostar minna að hafa fleiri stúdenta í háskóla?

Kostar minna að hafa fleiri stúdenta í háskóla?

Hmm… Skaut Þorgerður Katrín Menntamálaráðherra sig í fótinn í grein sem hún ritar í Fréttablaðið í dag (sunnud. 02.09.2007) undir yfirskriftinni “Kaflaskil í Gæðamálum”?

Í fyrstu málsgrein talar hún um aukningu á opinberum framlögum til menntamála á síðustu 9 árum – að, “með tilliti til verðlagsbreytinga…” hafi framlög aukist um “tæplega 70%…” Hún nefnir svo sérstaklega háskólastigið – að þar hafa aukningin verið um 95% (er það með tilliti til verðlagsbreytinga?).

En í næstu málsgrein segir hún, “Síðasta áratuginn hefur fjöldi háskólanema hér á landi meira en tvöfaldast”. S.s. fjármagnsaukninginn er ekki í samræmi við aukinn fjölda háskólanema. Eða er þetta kannski bara dæmi um “economies of scale”?

Athugasemdir

Páll Thayer

3.9.2007 kl. 09:19

Þeir kalla þig ekki “Thinker” fyrir ekki neitt (eða var það “thing-ker”?). Þetta er vel athugað hjá þér og ég vildi óska þess að Þorgerður sæi þessa athugasemd og svaraði.

Tryggvi Thayer

3.9.2007 kl. 09:52

Mér heyrðist þeir kalla mig “fastidious thinker” en kannski var það bara “fast idiot stinker”…