10.11.2007 kl. 11:58
“Megatrends in E-Learning Provision” verkefnið gefur út 3 ókeypis rit
“Megatrends in E-Learning Provision” er samevrópskt Leónardó da Vinci (ísl. landskrifstofan er hér) verkefni sem miðar að því að kortleggja stöðu tölvustudds náms í Evrópu. Verkefnið sendi í síðasta mánuði frá sér 3 rit, öll aðgengileg á netinu, sem eru afar áhugaverð fyrir þá sem láta sig þessi mál varða. Ritin eru:
The Provision of e-learning in the European Union – Gefur heildarsýn yfir stöðu tölvustudds náms í Noregi og Evrópusambandslöndunum.
Megaproviders of E-Learning in Europe – Segir frá 26 stórum stofnunum í Evrópu sem bjóða upp á tölvustutt nám.
E-learning initiatives that did not reach targeted goals – Segir frá 9 evrópskum verkefnum sem gengu ekki upp.
Athugasemdir