Britney eða Lindsay “manneskja ársins” hjá Time?

Britney eða Lindsay “manneskja ársins” hjá Time?

Það var skemmtilegt viðtal við Stephen King á vef Time um daginn. Þar leggur hann til að annaðhvort Britney Spears eða Lindsay Lohan verði “manneskja ársins” í ár í ljósi þess hve fyrirferðamiklar þær eru í fjölmiðlum.

Þetta er ekki svo galið þegar maður hugsar út í það. Flestir muna sennilega eftir því að Time kom öllum á óvart í fyrra þegar þeir völdu “þig” manneskju ársins. Með þessu vildu þeir vekja athygli á aukna þátttöku almennings í að búa til efni á netinu. Það væri áhugavert að framkvæma mælingu á því hvaða fólk kemur mest við sögu hjá “ykkur” á netinu og kjósa það manneskju ársins í ár. S.s. ekki ósennilegt að Britney eða Lindsay yrðu þá fyrir valinu, eða hvað?

Athugasemdir