16.1.2008 kl. 21:09
Áhugaverð bók frá Stewart Mader um wiki og þekkingarþróun/menntun
Ég hef ekki lesið þessa nýja bók en miðað við fyrri skrif Maders er sennilega óhætt að mæla með henni bæði fyrir “bissness” fólk og fólk í hvers kyns menntastarfi. Hún hefur víða fengið mjög lofsamlega umfjöllun fyrir það hvað hún þykir praktísk en hér er ekki á ferðinni tæknileg umfjöllun um uppsetningu og rekstur wiki-kerfa, heldur er fjallað um leiðir til að innleiða slík kerfi þannig að þau nýtast sem best. Miðað við það sem ég hef lesið á þetta vel við skólasamhengi eins og vinnustaði. Þess má geta að enginn annar en Ward Cunningham, faðir wiki-kerfanna, ritar inngang.
Bókin er að miklu leyti unnin upp úr efni sem Mader hefur skráð á bloggið sitt undanfarin ár á www.ikiw.org. Vefsíða hans um bókina er svo á www.ikiw.org/wikipatterns og má lesa fyrsta kafla bókarinnar þar og sjá efnisyfirlit og atriðaskrá.
Athugasemdir