Ekki svo galið en er það nýtt – og hvað er maðurinn í raun að segja?

Ekki svo galið en er það nýtt – og hvað er maðurinn í raun að segja?

Í Þúsaldaryfirlýsingu Sameinuðu Þjóðanna segir að eitt helsta 
viðfangsefni alþjóðlegra afla í dag skuli vera að tryggja að 
hnattvæðing verði jákvætt afl fyrir alla íbúa jarðar. Hnattvæðing er 
auðvitað ekki það sama og kapítalismi en það er ekki hægt að neita því að það er kapítalísk hugsun sem stýrir hnattvæðingunni í dag. Þannig að miðað við núverandi aðstæður má segja að verkefnið sem við höfum fyrir höndum nú er að tryggja að kapítalísk hugsun taki tillit til og virði framlag, og jafnvel sækist eftir framlagi, allra þeirra sem útbreiðsla þess snertir. Þetta passar við það sem Gates kallar “skapandi kapítalisma”, þó ég myndi kannski kjósa að kalla þetta eitthvað annað, t.d. “lýðræðislegan kapítalisma”, eða jafnvel enn betra “undirróðurs kapítalisma” (sjá t.d. skrif Feenbergs). En þetta býður upp á alls kyns deilur um eðli kapítalismans þannig að kannski er best í bili að halda sig við hugtak Gates.

En er Gates að fara fram á einhverja nýja hugsun hér? Ég held að svo sé ekki. Þetta sem hann talar um birtist sérstaklega í orðræðum um mótun réttláts þekkingarsamfélags í samræmi við væntingar sem gerðar eru til hnattvæðingar í Þúsaldaryfirlýsingunni. Helstir í þeirri orðræðu hafa verið Bengt-Ake Lundvall og Björn Johnson, sem lýsa hnattvædda þekkingarhagkerfinu sem lærdómssamfélagi sem þrífst á frjálsu og opnu flæði upplýsinga og þekkingar og sífelldri nýsköpun (meira um þetta hér). Getur hugmynd Gates tekið á sig nokkra aðra mynd en þessa?

Til að svona lagað nái fram að ganga þurfa margir að breyta því hvernig þeir hátta sínum viðskiptum. Margir ráðandi aðilar á heimsmörkuðum virðast reyna að kæfa opið flæði þekkingar og nýsköpun til þess að viðhalda sinni stöðu. Því verður ekki neitað að Microsoft er eitt augljósasta og þekktasta dæmið um þetta. Það hefur barist hart gegn opnum stöðlum og frjálsu flæði upplýsinga í rúman áratug núna meðan önnur upplýsingatækni fyrirtæki hafa tekið slíku fagnandi, t.d. Sun (OpenOffice.org og Java), IBM (Linux o.fl.) og Apple (Darwin o.fl.). Afleiðingin fyrir Microsoft er sívaxandi tortryggni í þeirra garð og fjandsamlegt samband milli þeirra og annarra í upplýsingatækni geiranum og marga ráðamenn (t.d. Evrópusambandið).

Það er því gaman að heyra Gates setja þetta svona fram. Spurningin er svo hvort þessar yfirlýsingar hans séu vísbendingar um breytingar hjá Microsoft. Ef svo er væri það eflaust gott fordæmi fyrir ýmsa sem haga sér á svipaðan hátt. En því miður er fátt sem gefur ástæðu til að vera sérstaklega bjartsýnn (sbr. OOXML “staðal” Microsofts).

Athugasemdir