6.6.2008 kl. 07:14
OECD vill álit þitt á framtíð netsins
Þetta er nú áhugavert – OECD er að undirbúa ráðherrafund sem verður haldinn í Seoul, S-Kóreu 17-18. júní undir yfirskriftinni “The Future of the Internet: Shaping Policies for Creativity, Confidence and Convergence in the Digital World”. Í því tilefni hafa OECD og YouTube efnt til átaks og býður öllum að segja og/eða sýna það sem þeir vilja koma á framfæri um framtíð netsins. Bestu myndskeiðin verða valin og sýnd á fundinum í Seoul og fundargestir hvattir til að bregðast við því sem almenningur hefur sent inn.
Það er ca. vika síðan OECD tilkynnti þetta en nú eru ekki komnar nema 10 athugasemdir inn á YouTube síðuna þeirra (og mikið af því á austurlenskum tungumálum sem ég skil ekki). Verst að skólarnir skulu vera búnir. Þetta hefði verið fyrirtaks verkefni fyrir þá.
Athugasemdir