3.6.2008 kl. 08:41
IFC Alþjóðabankans tilbúinn að fjármagna REI í Djíbútí
“To fight poverty with passion and professionalism for lasting results. To help people help themselves and their environment by providing resources, sharing knowledge, building capacity, and forging partnerships in the public and private sectors.”
S.s. að gera má ráð fyrir því að fjármagni frá IFC fylgi kröfur um að þróunarmarkmið séu höfð að leiðarljósi í samræmi við þessa stefnuyfirlýsingu. Djíbútí verkefnið er þá væntanlega aftur orðið þróunarverkefni e.o. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, þáverandi borgarstjóri, lýsti því á fundi utanríkisráðuneytisins um vor 2007. En þá vakna spurningarnar sem ég hef svo oft bent á (og þetta skiptir heilmiklu máli þegar verið er að hvetja einkageirann til að taka þátt í þróunarsamstarfi, e.o. utanríkisráðuneytið er að gera núna með Viðskiptaþróunarsjóðnum (sjá neðst á síðunni)) – hvernig á að meta slík verkefni, hver ætlar að gera það og hvernig tryggjum við samræmi í þróunaraðstoð Íslendinga þegar það er komið á svo margra hendur?
Athugasemdir