26.12.2008 kl. 12:06
Farsímar í skólastarfi
Það er búið að gefa út skýrsla í Bretlandi um notkun farsíma í skólastarfi. Þar er fjallað um nokkrar tilraunir sem þykja hafa tekist vel. Það er margt athyglisvert í skýrslunni en mér finnst athyglisverðust umfjöllunin um það hvernig tækni getur brúað bilið milli “skólalífs” nemenda og daglegs félagslífs þeirra. Þetta sýnir hvernig tækni nýtist til að opna leiðir fyrir nemendur að koma með sinn reynsluheim inn í skólastofuna og nýta í námi. Það virðist samt enn vera töluverður ótti við að nýta tækni á þennan hátt í námi. Það er alltaf þessi tilhneiging til að vilja verja skólastofuna fyrir utanaðkomandi áreiti. Það er athyglisvert að í skýrslunni skuli ekkert vera fjallað um jafnt aðgengi að tækninni, sem Bill Thompson vekur athygli á í umfjöllun um skýrsluna á vef BBC.
Ég hef oft bent á mikilvægi þess að tengja upplýsingatækni við skólastarf á hátt sem endurspeglar þátt tækninnar í samfélaginu og í daglegu lífi námsfólks. Þetta er áhugavert skref í réttu átt.
Athugasemdir