29.12.2008 kl. 12:36
Rannsókn á notkun ungs fólks á upplýsingatækni – skólar þurfa að breytast
Tillögur höfunda skýrslunnar ganga þvert á viðteknar hugmyndir um tengsl upplýsingatækni og menntunar. Tilhneigingin hefur verið að leita leiða til að taka upplýsingatækni í þjónustu menntunar án þess þó að gera mjög róttækar breytingar á skipulagi menntunar. Þessi rannsókn staðfestir að þetta þarf að endurskoða. Menntun þarf að taka mið af félagslegum veruleika ungs fólks ef hún á að halda gildi sínu fyrir þeim. Upplýsingatækni er miklu meiri þáttur í þessum veruleika en svo að hægt er að hugsa um hana sem eitthvert utanaðkomandi aðskotafyrirbæri sem þarf að þvinga inn í ríkjandi skipulag. Betra er að breyta skipulaginu til að laga það að þörfum netvædds ungs fólks. Þetta kallar á gjörbreyttar áherslur í menntastarfi og breyttu hlutverki kennara og menntastofnana. Það er spurning hvort þetta sé ekki hárréttur tími fyrir okkur að huga að þessum málum nú þegar m.a. er verið að breyta og efla kennaramenntun?
Niðurstöður rannsóknarinnar verða gefnar út í bókinni “Hanging Out, Messing Around, Geeking Out: Living and Learning with New Media” sem er nú þegar hægt að sækja á netinu hér.
Athugasemdir