26.1.2009 kl. 05:51
Hefur upplýsingatækni breytt menntun?
Rakst á skemmtilega samræðu á vef Economist milli Robert Kozma og Sir John Daniel um það hvort upplýsingatækni hafi breytt menntun. Fyrir þá sem ekki vita eru Robert Kozma og John Daniel meðal helstu gúrúa um upplýsingatækni og miðla í menntun. Þarna koma fram tvö ólík og áhugaverð sjónarmið frá tveimur mönnum sem hafa haft mikil áhrif á þróun menntunar allt frá 8da áratugnum.
Af einhverjum ástæðum er beðið um innskráningu á vefnum en það virðist nægja að smella á “Cancel” og þá kemst maður áfram.
Athugasemdir
Óskráður
3.2.2009 kl. 14:56
Ég sá að þú kommentaðir á blogg hjá mér, mér er mikið í mun að þú sjáir svarið þannig að ég sendi þér það hérmeð:
Tryggvi Thayer: liberalism er er miklu frekar frjálslyndi en frjálshyggja. Orðið yfir frjálshyggju er libertarianism.
Orðið neo-libertarianism er varla til og á þá við bandaríska pólítík eingöngu og þá ansi lítinn jaðarhóp sem engu ræður.
Þess vegna gef ég mér að hann eigi við neo-conservatism, sem fólk hefur heyrt um, er notað í umræðunni og hentar vel til upphrópanna.
Enda held ég að það sé hægt að fullyrða það að ekkert annað orð komi til greina. Ekki eitt einasta.
Mér finnst þessi tilraun þín til að sýnast klár hafa mistekist.