25.5.2006 kl. 13:13
Vegatollur á upplýsingahraðbrautinni, Vefur2006 og fleira
En það er margt áhugavert að gerast í heiminum. Um þessar mundir fer fram WWW2006 ráðstefnan í Edinborg. BBC fylgist vel með og er með viðtöl við Tim Berners-Lee og fleira. Sérstaklega áhugavert er þetta þar sem Tim Berners-Lee talar um hugmyndir netþjónustu aðila hér í Bandaríkjunum um að skipta netinu svo hægt verði að láta upplýsingaþjónustur greiða sérstaklega fyrir að fá forgang á netinu (fáránleg hugmynd að mínu mati og mjög amerísk). Hugsið ykkur ef við þurfum í framtíðinni að bíða eftir að fá upp bloggsíðu fjölskyldunnar út af því að hún tímdi ekki að borga “hraðflutningagjald”! Eða að þurfa að bíða í nokkra klukkutíma eftir tölvupósti frá vinum en að auglýsingapóstur birtist strax. Er nokkur notandi sem vill þetta?
BBC er líka með áhugaverða síðu um þróun mála í Kína og Indlandi þar sem hinir og þessir einstaklingar segja frá því hvernig þróunin er að hafa áhrif á þeirra líf.
Ég er ennþá að bíða eftir að einhver bjóði sig fram til að sponsora ferð mína til Indlands…
Athugasemdir