10.6.2006 kl. 16:14
Eins og ég nefndi í síðustu skrifunum heyrist lítið frá mér vegna flutninga. En nú er fjölskyldan komin heim, reyndar fyrir næstum 2 vikum. Nú eru það ekki flutningar sem hamla aðgang minn að netinu heldur eru það samskiptafyrirtækin hér. Ég fór og sótti um nettengingu og heimasíma stuttu eftir heimkomuna og það tekur víst allt upp í 2 vikur!!! Þegar ég fékk netið í USA var ég tendur næsta dag og sú bið stafaði aðeins af því að það þurfti einhver að koma með mótaldið heim til mín því ég átti ekki bíl. Nú eiga íslendingar að vera fremstir þjóða í netaðgengismálum,
loksins komnir fram úr Suður Kóreu í breiðbandsnotkun, en ef ég á segja alveg eins og er er ýmislegt sem fer í taugarnar á mér. Fyrst er það auðvitað þessi fáránlega bið eftir tengingu. Svo er það verðlagningin. Af hverju í ósköpunum er ennþá verið að láta fólk greiða sérstaklega fyrir niðurhal erlendis frá? Því ekki að hafa bara verðlagninguna þannig að allt niðurhal er innifalið? Ég veit að það er hægt að kaupa sérstaka áskrift þar sem ekki er mælt. En hún er bara svo fáránlega dýr. Því ekki að hafa bara venjulegu áskriftina á aðeins hærra verði og dreifa kostnaði vegna niðurhals erlendis frá á alla? Ég get ekki ímyndað mér að það sé nokkur netnotandi sem notar bara innanlands upplýsingaveitur (get ekki einu sinni ímyndað mér að það sé hægt) og því eru engin auðsjaánleg rök fyrir því að bjóða upp á tengingar á þessum forsendum. Í USA var ég með fína kabaltengingu og borgaði fyrir hana ca. kr. 3.000-3.500 á mánuði (eftir genginu) og það voru engin falin aukagjöld. Þetta samsvarar ca. 4 kippum af stórum bjór. Hér á landi sýnist mér það vera á ca. kr. 4.500. Þannig að, í staðinn fyrir að hafa eina áskriftaleið á kr. 4.000 sem er mæld og aðra á kr. 6.000 sem er ekki mæld, láta bara alla borga kr. 4.500 og hætta þessum mælingum. Væri það ekki sanngjarnt?
Við virðumst hafa smá forskot hér á landi í netmálum núna, en það er ekki sjálfsagt að við höldum því (Ísland féll úr 2. sæti í 4. í Global Information Technology Report í ár). Grein í BBC í dag fjallar um tæknivæðingu Malasíu og hvernig hún hefur orðið að engu (eða litlu) þar sem upphaflegum áætlunum var ekki fylgt eftir. Tæknivæðing, netvæðing og upplýsinga-/þekkingavæðing er ekki eitthvað sem gerist í eitt skipti á afmörkuðu sviði. Það þarf allt að vinna saman – stefnumótun, menntun, tækni og markaðssetning – og þegar allt kemur saman þarf að halda þróuninni áfram. Þetta er “upplýsinga-/þekkingasamfélagið” í hnotskurn – byggja upp hreyfiafl og svo halda því. Aðgengi að netinu verður stórlega bætt með einföldun gjaldskráa. Við þekkjum örugglega öll fólk sem forðast háhraðatenginga vegna ótta við að falinn kostnaður fari úr böndunum. Núverandi gjaldskrár eru orðnar gamaldags og ástæðulausar.
(ES: Svo á meðan við erum að kippa þessu í lag verðum við að gera eitthvað í sambandi við Farice og Cantat. Er ekki hægt að fá eitthvað af þessum álfyrirtækjum og íslenskum fjölþjóðafyrirtækjum til að borga hluta af þessu?)
Athugasemdir
Óskráður
11.6.2006 kl. 17:59
Sæll, Tryggvi !
Skiptu við annað fyrirtæki með netið, td Hive. Eitt gjald, ótakmarkað niðurhal. Ekkert vesen. Varstu ekki einusinni í kvennó ? Grunar að ég hafi kennt þér einhvern tímann.
Kristín Marín
Tryggvi Thayer
12.6.2006 kl. 08:42
Reyndar er ég að skipta við Hive (þori varla að nefna það – ég er hræddur um að þeir detti inn á bloggið og fara í fýlu og að biðin verði ennþá lengri…). Og reyndar eru þeir með þetta fyrirkomulag sem ég lýsi, þ.e.a.s. 4.000 fyrir mælt niðurhal og 6.000 fyrir ótakmarkað. Mér finnst 6.000 krónur allt of mikið fyrir nettengingu þegar ég veit að ég verð stundum (jafnvel oftast) innan 1 GB sem er innifalið í ódýrari áskriftinni. En svo er það – reyndu að útskýra þetta fyrirkomulag fyrir þeim sem eru ekkert sérstaklega tæknilega sinnaðir:
“Og meðan við erum úti getum við haft svona myndfundi í tölvunni!”
“Hvað segirðu? Og fyrir þetta borgum við bara kr. 4.000 á mánuði?”
“Tja, nema að gagnamagnið fari yfir 1 GB.”
“Og eitt gítar-eitthvað, er það ekki rosalega mikið?”
“Jú, það er ansi mikið þangað til að þú ert farinn að senda hljóð og hreyfimynd yfir netið.”
“Við ætlum ekkert að gera svoleiðis, bara að myndfunda.”
“Reyndar ertu að senda hljóð og hreyfimynd þegar þú myndfundar, og svolítið mikið af því og þá þarf kannski að borga svolítið meira.”
Og svo framvegis þangað til, “Við ætlum bara að halda okkar upphringisambandi. Það dugar okkur alveg.”
Jú, ég var í Kvennó. Það er orðið ansi langt síðan. Það getur vel verið að þú hafir kennt mér. Mér finnst ég kannast við nafnið.
Óskráður
12.6.2006 kl. 21:51
Við hjónin rákum okkur á það í vetur að “ótakmarkað niðurhal” er ekkert ótakmarkað. Fengum voða fínt hótunarbréf frá okkar þjónustufyrirtæki af því við fórum yfir þessi takmarkalausu mörk (en ég þurfti að leita í hálftíma að smáa letrinu í samningnum á vef þeirra þar sem er talað um þetta).
Ég spurði oft og mörgum sinnum á sínum tíma hvort þeir meintu í alvörunni “ótakmarkað”. “Ójá, það stendur ótakmarkað og þá meinum við það”.
Ég fór síðan að skoða þetta og öll fyrirtækin (líka Hive) eru komin með þetta í smáa letrið.