Tölvur og netið sem kennslutæki

Tölvur og netið sem kennslutæki

Það er mikið deilt um það hvort og hvernig eigi að nota tölvur og netið í kennslu. Eitt sem mér finnst stundum svolítið pínlegt að sjá er þegar stöðugt er verið að reyna að búa til eitthvað “nýtt” sem á loksins að gera netið að nothæfu kennslugagni. Það eru vefleiðangrar, e-portfólíur, WebCT, alls kyns heimatilbúnir kennsluvefir, og svo framvegis. Ég veit að það eiga einhverjir kennarar eftir að detta hingað inn og vilja benda á kenningar, rannsóknir og reynslu sem sýnir að þetta gerir eitthvað gagn og það er sennilega hárrétt hjá þeim. En það sem ég vil meina er að við þurfum ekki að hafa svona mikið fyrir þessu. Það sem við lítum oft framhjá er að netið er í sjálfu sér námstæki sem notendur eru alltaf að læra eitthvað af. Spurningin er ekki, hvernig notum við netið sem kennslugagn, heldur, hvernig og hvað er fólk að læra af tölvu- og netnotkun sinni og hvernig getum við bætt útkomuna úr því? Fólk er í leikjum, það bloggar, það er að “tjatta” – og í öllu þessu er fólk að skiptast á upplýsingum og að vinna saman og það getur ekki annað en lært eitthvað af því. Reyndar er mikill áhugi á leikjum í kennslustarfi um þessar mundir en mér finnst furðulítið fara fyrir bloggum, “tjatti” og wiki-vefjum í umræðunni. Það er meira að segja stundum reynt að koma í veg fyrir að þessi tól séu notuð af námsfólki. Sumir skólar loka fyrir slíkt á netkerfum sínum og ég hef heyrt um kennara sem banna sínum nemendum að nota eða vísa í Wikipedia í verkefnum sínum (ég er rosalega hrifinn af Wikipedia).

Ég er kominn langt út fyrir efnið sem ég ætlaði að tala um. Kveikjan að þessari færslu var frétt um leik sem frönsk yfirvöld hafa sett á netið þar sem almenningi er boðið að búa til fjárlög. Þetta er stórsniðug leið til að kenna fólki um skatta og ríkisútgjöld og fleira. Þetta minnir á “Food Force”, leikur sem Sameinuðu Þjóðirnar hafa búið til sem gengur út á það að koma matvælum til bágstaddra. Líka stórsniðugur. Svo er það innreið Eve Online í Kína. Ég man ekki hvar ég las eða heyrði þetta, en mér skilst að þegar leikurinn var kynntur þarlendis ruku kínverjarnir beint í menntamálaráðuneytið og sögðu að hér væri komið briljant tæki til að kenna samvinnu og frumkvöðlastarfsemi!

Athugasemdir