29.6.2006 kl. 15:19
Að læra af leikjum
Aldrei þessu vant er CNN með áhugaverða frétt á vefnum sínum í dag um tölvuleiki sem eiga að upplýsa og kenna fólki um raunir þeirra sem þurfa að þola stríð og hungur. Áhugavert að þeir skuli flokka fréttina undir “Fun & Games”. Fátt skemmtilegra en að þurfa að flýja heimili undan uppdópuðum morðóðum hermönnum út í eyðimörkinni. Tengist fyrri færslu minni um það hvernig við notum tölvur til að læra.
Athugasemdir